Nokia 1209 - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif

af útvarpsbylgjum.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er

hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af

útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla

með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu

vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem

ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.

Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er

notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk

SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/

kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af

líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum

notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á

öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur

tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem

tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að

ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn,

t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.

Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir

notkun tækisins við eyra 1,07 W/kg (RH-99) eða 1,01 W/kg

(RH-105).

Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-

gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa

sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.

Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um

vörur á www.nokia.com.

Viðbótaröryggisupplýsingar 13

background image

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI

Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RH-99/

RH-105 er í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem

gerðar eru í tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um

samkvæmni er að finna á slóðinni http://www.nokia.com/

phones/declaration_of_conformity/.

© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Nokia, Nokia Connecting People, og Navi eru vörumerki eða

skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er

vörumerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti

fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða

vöruheiti viðkomandi eigenda.

Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta

skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram

fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem

felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera

breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu

skjali án undangenginnar tilkynningar.

AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA

EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM

KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á

GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,

TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM

ÞAÐ VILL TIL.

INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“.

UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI

BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA

EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI

EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI

TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ

ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM

ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.

Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir

þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu

það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila. Tæki

þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur

útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og

öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki

samræmast lögum eru óheimilar.

9207561/Útgáfa 3 IS

14