Nokia 1209 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna

(RF) við notkun í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það

er haft að minnsta kosti 2,2 sentimetrar (7/8 úr tommu) frá

líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar

tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður

ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti

í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.

Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf góða

tengingu við símkerfið. Sending gagnaskráa eða skilaboða

getur tafist þar til slík tenging er tiltæk. Fylgið ofangreindum

fjarlægðarfyrirmælum þar til sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að

tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða

hluti með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem

þar eru geymdar gætu þurrkast út.